Hljómsveitaræfingin hjá Finni fór hálftíma fram úr áætlun (á þetta til hún Ewa blessunin), ég sat og beið eftir honum, stelpurnar á leið í óperuna í kvöld þannig að ég var að verða pínu stressuð. Æfing búin klukkan kortér fyrir sex, búið að setja fram kex, safa og mandarínur eftir æfingu, Finnur náttúrlega varð að fá sér svoleiðis, ég pakka og hrifsa drenginn heim, komin klukkan sex. Fífa var reyndar búin að búa til tortilludeig, ég tek til við að hakka lauk og ólífur og hvítlauk og blaðlauk og jalapenos, steikt ásamt hakki og tómatjukki og tacokryddi á pönnu, Freyja reif bita af osti, hitað í ofni, búið til guacamole (rétt mundi eftir avocadoinu tilbúnu úti í glugga) steiktar tortillur á píadínupönnunni góðu (Fífa rúllar út), passar nákvæmlega að hakkjukkið pípir þegar ég steiki síðustu tortilluna, borðað, gengið frá, uppþvottavél sett af stað, þurrkað af borðinu, sest við tölvuna. Klukkan er sjö.
Miðað við alveg frá grunni (mínus deigið), ekki slæmt, ekki slæmt!
(já, Jón Lárus er semsagt í viðskiptavinahófi Samskipa – annars hefði ég örugglega ekki þurft að gera neitt af þessu…)
að ég sé rauðhærð, allavega er búinn að vera þvílíkt – tja ekki sparka-í-Hildigunni dagur en allavega vera-fyrir-og-svína-á-Hildigunni dagur. Allt frá því á leiðinni vestur í Neskirkju í morgun, heim aftur, inn í Hafnarfjörð, meira að segja í Fjarðarkaupum tókst fólki alveg þvílíkt að þvælast fyrir mér á leiðinni inn í búð. Og ég sem er búin að þurfa að keyra svo MIKIÐ í dag.
En það fer að verða búið. Eitt skutl í viðbót, ná í Finn í hljómsveit en svo bara elda og kannski rauðvínsglas í kvöld. Er að pæla í þessari uppskrift, hljómar vel…
Scriam intr-un articol recent ca atunci cand esti mic te bati cu cei mici, cand esti mare te bati cu cei mari. Dar indiferent de dimensiune vrei sa fii si mai mare. Astazi vorbim despre cei mari care sunt in top, aproape de neatins, care au o reputatie solida si piete de desfacere mature, adica venituri plafonate. Ce este de facut? Caci actionarii vor mai multi bani. Raspunsul este extindere. Iar variantele sunt doua: pe verticala sau pe orizontala.
In primul caz se cumpara ori furnizorul, ori distribuitorul. Asa incat banii care ar fi ramas partenerului din aval sau din amonte ca profit sa apara acum in conturile companiei care cumpara. Practic elimina un intermediar prin inghitirea lui.
In al doilea caz extinderea se face prin patrunderea in zone geografice noi sau in alte industrii, de regula complementare. Cruciala pentru succesul afacerii in noua zona sau industrie este reputatia firmei pentru ca odata ce cumparatorii au incredere in companie si produsele ei, dezvoltarea devine mai facila.
Un astfel de exemplu este Dell care tocmai a achizitionat Perot Systems, firma care in Romania este cunoscuta mai mult datorita car-kit-urilor sale. Perot este insa in multe tari un furnizor general acceptat in industria medicala si in zonele guvernamentale iar trecerea lui in portofoliul Dell da acestuia din urma o bula mare de oxigen in ceea ce priveste vanzarile catre sectorul public unde vanzarile de echipamente IT ale lui Dell sunt aproape blocate. La randul lor produsele Perot vor beneficia de reputatia Dell si probabil vor cunoaste o crestere a cotei de piata iar in final banii, profitul si market-share-ul raman la Dell.
<object width='425' height='350'><param name='movie' value='http://www.youtube.com/v/xhtgw-tOj-o&rel=1&fs=1&showsearch=0&hd=0' /><param name='allowfullscreen' value='true' /><param name='wmode' value='transparent' /><embed src='http://www.youtube.com/v/xhtgw-tOj-o&rel=1&fs=1&showsearch=0&hd=0' type='application/x-shockwave-flash' allowfullscreen='true' width='425' height='350' wmode='transparent'></embed></object>
Í gær tók ég mig til og bakaði skonsur. Ég hef aldrei bakað skonsur áður en vinkona mín á 101cookbooks setti inn uppskrift að skonsum í vikunni sem mér leist mjög vel á. Þetta eru hálfgerðar “heilsu”skonsur með smá twisti. Ég set gæsalappir utan um heilsu af því þær eru auðvitað með talsvert af smjöri, sem verður seint kallað heilsusamlegt. Twistið er síðan appelsínubörkurinn og currants. Currants eru svipaðar og rúsínur, nema bara minni. Ég geri ráð fyrir að það sé vel hægt að nota rúsínur í staðinn. Ég gæti líka hugsað mér að setja þurrkuð trönuber eða mögulega goji ber í þær.
Í dag eru tvær vikur þangað til ég og Þóra María yfirgefum Hjalta og förum heim til Íslands. Ég bjó til buff með tófu og kartöflum um daginn og setti inn í frysti ef Hjalti skyldi verða þreyttur á kínversku sinunum í msg sósunni þegar hann er að læra fyrir prófin. Ég ákvað að gera það sama við helminginn af skonsudeiginu, frysta það, svo Hjalti geti bakað sér skonsur með kaffinu í prófunum.
Skonsurnar voru mjög góðar. Þær eru dálítið stórar samkvæmt uppskriftinni. Gæti verið sniðugt að minnka þær aðeins. Ég átti samt ekki í neinum erfiðleikum með að háma þær í mig. Svo borðaði ég þær með smjöri í hádeginu í dag og það var alls ekkert verra. Uppskriftin af skonsunum er hér. Ef ég væri heima á Íslandi myndi ég nota rúsínur, af því ég held það sé erfitt að fá currants, og svo myndi ég nota Ab mjólk í staðinn fyrir buttermilk.
Hjalti kom ekki heim úr skólanum fyrr en kl 8 í gærkvöldi og þá áttum við eftir að baða litla ljós og leggja hana í rúmið. Við þurftum því að gera eitthvað súpereinfalt og fljótlegt í kvöldmatinn þegar búið var að sinna skvísunni. Við ákváðum að gera spínat quesadillas. Hér er mynd af þeim tilbúnum …
Við notuðum bara það sem við áttum. Ég fékk hugmyndina á hér og mótaði hana að því sem til var í ísskápnum. Ég notaði cheddarost í staðinn fyrir feta ostinn af því það var það sem við áttum. Ég gæti vel trúað því það væri gott að setja sveppi líka á pönnuna og fyrir okkur sem finnst chili gott væri líklega gott að setja eins og hálfan serrano chili með líka. Ég geri það næst…
Uppskriftin er eftirfarandi:
2 tsk ólifuolía
4 skarlottulaukar skornir í þunnar ræmur
2 hvítlauksrif marin
3 bollar spínat
1/2 tsk salt
nýmalaður pipar
1/4 tsk timían
1/4 tsk rósmarín
1/8 tsk cayenni pipar á hnífsoddi
2 eggjahvítur
6 mjúkar tacoskeljar
2 bolli gamall cheddar ostur
Setja olíuna á pönnu á miðlungshita og mýkja laukinn. Bæta svo hvítlauknum út í og steikja í svona eins og 2 mínútur í viðbót. Setja svo spínatið og pönnuna og kryddin. Steikið í um 2 mínútur í viðbót eða þar til spínatið er orðið eiginlega alveg mjúkt. Hellið af pönnunni í skál og blandið eggjahvítunni út í og helmingnum af ostinum. Þurrkið pönnuna og setjið mjúka tacoskel á, smá ost og spínatblöndu á annan helminginn af skelinni. Við höfðum nóg af spínatblöndu á 6 skeljar. Lokið svo skelinni og steikið í nokkrar mínútur við lágan hita. Snúið við og steikið í smá stund til viðbótar. Leggið í eldfast mót. Gerið við allar skeljarnar, stráið smá osti yfir og setjið á grill inn í ofn í 1-2 mínútur.
Af okkur er annars það að frétta að Hjalti er að læra undir próf sem hann fer í á fimmtudaginn. Ég og Þóra María fórum á skyndihjálparnámskeið í dag með hinum stubbunum og komum svo heim og lékum okkur þar til Hjalti kom heim í mat. Við ætlum að reyna að snúa sólarhringnum hennar aðeins við áður en við förum heim, bæði svo að það verði auðveldara fyrir hana þegar við komum heim og líka til þess að það séu meiri líkur á því að hún sofi í fluginu á leiðinni heim. Kvöldið í kvöld er fyrsta kvöldið og við ætluðum að láta hana fara að sofa klukkutíma fyrr en áður. En þar sem Hjalti var að fara að læra endaði þetta með því að vera tveimur tímum áður en vanarlega og það líst henni illa á. Annað kvöld verður örugglega mun auðveldara.
Bæ í bili
Í dag ákvað ég að búa til nýja tegund af barnamat fyrir Þóru Maríu. Hún er mjög hrifin af sætum kartöflum og ég ákvað að bæta steinselju í maukið. Steinselja inniheldur mikið magn af K og C vítamini, auk þess að vera rík af járni, A vítamíni og ýmsum B vítamínum. Börn sem eru innan við árs gömul fá yfirleitt mjög lítið af járni og þarf því að passa upp á að járn sé í fæðunni. Yfirleitt er járn þó viðbætt í þurrmjólkina sem þau drekka og því ekki ástæða til að hafa áhyggjur af járnskorti nema barnið sé aðeins á brjósti. Ég keypti bókina Cooking for Baby: wholesome, homemade, delicious foods for 6 to 18 months í ágúst, þegar ég hélt að Þóra María færi fljótlega að borða fasta fæðu. Hún var þó ekki alveg á þeim buxunum strax en er núna farin að borða með bestu lyst. Maður þarf þó alltaf að fara varlega í að kynna eitthvað nýtt fyrir litlum börnum. Það getur víst tekið þau allt upp í 10 skipti að byrja að líka við nýja tegund af mat. Bókin talar um að maður fari að kynna börn fyrir kryddum þegar þau eru milli 7 og 8 mánaða og þar sem Þóra María er orðin rúmlega 8 mánaða taldi ég það óhætt.  Steinseljan er mild á bragðið og því góð fyrir byrjendur.
Ég keypti bara venjulegar sætar kartöflur. Það er þó mælt með því að maður kaupi rótargrænmeti eins og kartöflur lífrænt vegna þess að þau draga mikið magn af áburði og eitri í sig ofan í moldinni. Ég horfði á þátt sem var búinn til í kringum bókina The Botany of Desire eftir Michael Pollan um daginn og þar var fjallað um mikilvægi þess að kaupa lífrænt ræktaðar kartöflur. Hér er umfjöllun um heimildamyndina. Hún var mjög góð. Myndin skiptist í fjóra hluta, umfjöllun um epli, túlípana, cannabis og kartöflur. Ég datt inn í myndina þegar verið var að fjalla um cannabis plöntuna, og lærði margt sem ég vissi ekki um þá merkilegu plöntu. Smá útúrdúr hér…
Þóru Maríu fannst nýja maukið mjög skrítið á bragðið, gretti sig og rak út úr sér tunguna. Þá bætti ég aðeins meiri kartöflu út í maukið. Mig grunar að ég hafi sett aðeins of mikla steinselju, þó svo að ég hafi ekki fundið neitt steinseljubragð. Hún var ekki enn hrifin, þannig að ég ákvað að salta þetta steinseljuævintýri aðeins og gefa henni gamla góða epla, rúsínu og granóla maukið sem hún gjörsamlega elskar. Ég hljóp svo yfir til Marco með afganginn af steinseljumaukinu og gaf Segio það. Hann borðar allt.
Á morgun verður hins vegar gerður algjör lúxus matur fyrir litla drauminn okkar. Í gær fórum við í búð sem heitir Young Brothers og er grænmetis og ávaxtabúð hér í Vancouver. Við komum út klyfjuð af hollustu. Við keyptum meðal annars avókadó og banana til þess að búa til mauk fyrir Þóru Maríu. Ég las eitthver staðar að það yrðu til töfrar þegar maður blandaði saman avókadó og banana. Ég hef einu sinni áður gert þetta mauk fyrir músina en varð þó ekki vör við aðra töfra en vanarlega, yndislega hamingjusamt barn sem borðar af bestu lyst.
Avókadó er sannkallaður ofurmatur (e. superfood). Ofurmatur af þessu tagi hefur verið í umræðunni að undanförnu og var David Wolfe, talsmaður ofurfæðis og hollustu, í viðtali í Kastljósinu á mánudaginn í síðustu viku (9. nóvember). Við þekktum hann auðvitað vel síðan við sáum heimildamyndina Food Matters, sem er mögnuð mynd um mataræði nútímans og leiðir til þess að lækna ýmsa kvilla með breyttu mataræði. Mér fannst David Wolfe með mjög skemmtilegar hugmyndir í Kastljósinu og ég vonast til þess að honum verði tekið vel á Íslandi og hann komist eitthvað áfram með þessi plön sín um að markaðssetja Ísland sem hreint heilsusamlegt land. Enn aftur í avókadóið.
Avókadó er frábær ávöxtur sem inniheldur mikið magn af fitu og trefjum. Um 75% af hitaeiningunum í avókadó koma úr fitu, og mjög hollri fita. Avókadó inniheldur líka mikið magn af potassiumi, B og E vítamíni. Þar sem avókadó er fullt af góðri fitu er það sérstaklega gott fyrir hjartað og heilann. Andstætt kartöflunum þarf maður ekki að kaupa lífrænt ræktað avókadó vegna þess að það er með mjög þykkan börk sem eiturefnin komast erfilega í gegnum. Vonandi tekst mér vel til…
Þá er það svefn….
Eins og flestir vita sem þekkja mig og Hjalta þá er matargerð stórt áhugamál hjá okkur. Við eldum mikið, spáum mikið í mat og þar af leiðir borðum mikið. Það varð engin breyting á því þegar við fluttum hingað til Vancouver. Vancouver er þekkt fyrir að vera mjög asísk borg. Mikið er um kínverska, japanska, víetnamska, kóreyska, taílenska og indverska staðir, enda helmingur borgarinnar af asísku bergi brotinn. Við höfum lengi verið hrifin af indverskri matargerð og elduðum mikið indversk áður en við komum hingað. Við höfum hins vegar aldrei reynt fyrir okkur í japönsku matargerðinni, þó svo að við séum afar hrifin af henni líka. Við ákváðum að skilja allar okkar kokkabækur eftir heima og byrja frá grunni á eitthverju nýju. Japönsk matargerð varð fyrir valinu.
Í Kitsilano, sem er mjög skemmtilegt hverfi hérna rétt hjá, er bókabúð sem heitir Barbara Jo’s Books to Cooks (2. Ave. and Burrard). Þetta er æðisleg búð. Hún selur einungis kokkarbækur og úrvalið er því ótrúlega gott. Þjónustan er góð og svo getur maður líka farið á námskeið í matargerð þar. Við fórum þangað í fríinu okkar í ágúst og keyptum bók um japanska matargerð. Eftir það fórum við í allskonar búðir hérna og keyptum mismunandi tegundir af þara, þ.e.a.s. kelp, nori og wakame. Svo keyptum við dashi, bonito flögur og fleira í þessum dúr. Ég las bókina Japanskar konur, hraustar og grannar, sem er mjög skemmtileg bók um japanska matargerð og inniheldur nokkrar japanskar uppskriftir. Og svo byrjuðum við! Og svo hættum við! Við komumst eiginlega að þeirri niðurstöðu strax að japönsk matargerð, þ.e.a.s. allt annað en sushi er annars vegar of hollt fyrir okkur (sem ég hélt að væri ekki hægt) og hins vegar bragðast allt nánast eins. Þeir sem vita mikið um japanska matargerð finnst þetta örugglega algjört rugl, en við sem sagt gáfumst upp á japönsku matargerðinn og kaupum okkur nú bara sushi tilbúið, eins og ég held að flestir japanir geri.
Hjalti keyptu að vísu bók um daginn sem kennir sushi-gerð. Hann bjó svo til inside out california rúllur fyrir okkur sem voru mjög góðar. Lykillinn er að ná hrísgrjónunum vel. Til þess að þau verði góð er nauðsynlegt að sjóða þau í hrísgrjónapotti, láta þau kólna niður í stofuhita og hræra þau svo upp úr hrísgrjónaediki, sykri og sítrónu. Þannig verða þau ekki of klesst og góð á bragðið. Þetta er hins vegar frekar mikið mál og þegar maður getur fengið gott sushi fyrir fyrir mjög lítinn pening rétt hjá þá nennir maður þessu eiginlega ekki.
Þar sem við vorum hætt í japönsku matargerðinni varð ég að finna uppskriftir til þess að nýta allt þetta japanska hráefni sem við vorum búin að kaupa, og þá má segja að ég hafi fundið gullið. Ég fann æðislega heimasíðu sem við erum búin að elda nánast eingöngu eftir, dag eftir dag, og hefur varla klikkað.
www.101cookbooks.com er matarblogg konu sem heitir Heidi Swanson og býr í San Fransisco. Hún er ljósmyndari og kokkur og gaf út bókina Super Natural Cooking. Bloggið kom þannig til að þegar hún átti orðið 100 kokkabækur ákvað hún að hætta að kaupa kokkabækur og fara að elda. Síðan hennar er rosalega vinsæl og hún setur inn uppskriftir úr bókunum sem hún á með leyfi höfundanna, og breytir þeim eftir sínu höfði. Myndirnar á síðunni er ótrúlega flottar og textinn við hverja færslu er skemmtilegur. Hún talar um innihaldsefnin, uppskeru hverrar árstíðar og hollustuna í matnum. Hún er sjálf grænmetisæta og henta uppskriftirnar okkur því mjög vel, þar sem við höfum verið lítið í kjötinu síðan við komum hingað út og ætlum að halda því áfram.
Mér fannst þetta með 100 kokkabækurnar og enga kokkamensku dálítið fyndið af því ég sá mig alveg gera það sama, kaupa fullt af kokkabókum (eða prjónabókum) og bara skoða og skoða og gera svo ekkert meira. Mig langar að setja inn lista yfir uppskriftirnar sem við erum búin að prófa og smá comment við þannig að þið vitið hvað er þess virði að elda og líka svo ég muni hvað ég er búin að gera og hvað var gott.
Broccoli Cheddar Soup Recipe: Súpan er rosalega góð, fáránlega einföld og fljótleg. Brauðteningarnir eru líka ótrúlega góðir og örugglega hægt að nota þá í margt annað en þessa súpu.
Red Lentil Soup Recipe: Virkilega bragðgóð, matarmikil og einföld súpa. Frábær vetrarsúpa sem krefst lítillar fyrirhafnar. Við settum saxaðar valhnetur, grænar ólifur og fetaost ofan á
Thai-spiced Pumpkin Soup Recipe: Nauðsynlegt að nota ekki venjulegt grasker heldur minni tegund af graskeri eða squash. Okkur fannst hún of þung bara með graskeri þannig að við settum gulrætur og sæta kartöflu til að létta hana næst þegar við gerðum hana, þá var hún mjög góð og full af A og C vítamíni.
Roasted Pumpkin Salad Recipe: Þetta salat var ekkert sérstakt, aðallega út af því að ég notaði venjulegt grasker, sem er bara frekar bragðlaus og frauðkennt. Þau eru víst rosalega misjöfn, þannig að kannski hef ég bara verið óheppin. Salatið er örugglega gott ef maður notar sætar kartöflur í staðinn fyrir graskerið.
Tassajara Warm Red Cabbage Salad Recipe: Þetta salat er alveg meiriháttar. Ég á örugglega eftir að gera það oft. Það er mjög einfalt, fljótlegt og ótrúlega hollt. Við gerðum það í hádeginu, en það er örugglega fínt í kvöldmat með eitthverju, eða í forrétt.
Pineapple Rice Recipe: Mjög gott. Sósan er smá maus, en algjörlega þess virði. Það er eitthvað í þessu sem heitir seitan og er wheat gluten, þ.e.a.s. hveiti glúten. Mér fannst það ekki hljóma vel og ég vissi ekki hvar ég átti að kaupa það þannig að ég setti kjúkling í staðinn.
Cilantro Noodle Bowl Recipe: Þessa uppskrift erum við búin að elda þrisvar á rúmlega mánuði. Hún er æðisleg. Við höfum notað kjúkling í staðinn fyrir tofuið, en það er örugglega gott að hafa tofu. Við höfum líka notað venjulegt brokkolí af því ég hef ekki fengið þetta funky brokkoli neinstaðar.
Lazy Day Peanut Noodle Salad Recipe: Þessi uppskrift olli mér dálitlum vonbrigðum. Ég bjóst við svo rosalega góðum mat af því mér finnst allt svo gott sem er í uppskriftinni. En hún var bara ekkert spes. Ef ég þjóskast við og geri hana aftur þá mun ég setja miklu minna af hrísgrjónaediki.
Warm and Nutty Cinnamon Quinoa Recipe: Mér fannst þetta ekkert smá girnilegt á myndinni og bjóst við miklu. Þetta var hins vegar ekki gott. Allt of mikið af quinoa.
Irish Mum’s Brown Bread Recipe: Þetta er fínt brauð. Gott með súpu.
Jæja, þá hafiði það. Það verða nú líklega ekki margar svona færslur, gott samt að vera búin að kom þessu á einn stað svo ég haldi utan um uppskriftirnar. Ég hef samt örugglega gleymt nokkrum.
Það verður þó engin eldamennska í kvöld. Hjalti var í prófi í morgun og ég og Þóra María fórum í H1N1 sprautu (sér færsla um það) þannig að Hjalti ætlar bara að kaupa eitthvað á leiðinni heim úr skólanum.
Bæ í bili og bon appetite
Viltu koma í veg fyrir háan blóðþrýsting, Alzheimers eða gigt? Að velja rétt í matinn kann að hafa áhrif á þessa sjúkdóma. Rannsóknir sína að sumar fæðutegundir geta verið afar árangursríkar í baráttunni við þessa sjúkdóma. Þannig að hér eru nokkrar ábendingar um það sem þú ættir að borða – og drekka – ef þú vilt halda heilsunni í lagi, fengið frá Rodale útgáfufélagi.:
Ef þú ert með of háan blóðþrýsing: Drekktu þá stórt glas af 100% appelsínusafa. Ný rannsókn í New England Journal of Medicine segir frá því að aukning á kalsíum (potassium) og kalki í fæðunni þinni getur haft áhrif á blóðþrýsingin til lækkunar. Hvernig? Skv. Dr. Lindu Van Horn, prófessor við Nortwestern háskólan, hafa steinefnin verndandi áhrif á nýrun þegar kemur að magni natríums (salti) sem oft ýtir undir háan blóðþrýsting. Kalkbættur appelsínusafi hefur venjulega mikið af báðum steinefnum. Einnig er mikið af C-vítamínum í appelsínusafanum og fólkið sem er með mest af C-vítamíni í blóðinu eru um 40% minn líklegri ti lað deyja úr hjartasjúkdómum heldur en fólk sem er með lágt magn af C-vítamíni.
Varðandi Alzheimers: Möndlur. Möndlur innihalda E-vítamín. Rannsókn sem National Institutes of Health stóð fyrir, fann út að andoxunaráhrif E-vítamíns verndar heilan eftir því sem þú eldist. Handfylli af möndlum inniheldur u.þ.b. helming af ráðlegðum dagskammti af E-vítamíni, þannig að kannski ættu tvær lúkur á dag að duga.
Ef þú hefur áhyggjur af gigt: Borðaður þá hálfan bolla af soðnu grænmeti. Grísk rannsókn gefur til kynna að því meira af soðnu grænmeti sem þú borðar því minni líkur eru á því að þú fáir gigt. Rannsóknin fylgdist með heilsu og matarræði yfir 300 manns og fann út að þeir sem átu MEST af soðnu grænumeti voru 75% minna líklegri til þess að fá gigt heldur en þeir sem borðuðu minnst. Hversvegna? Ein mögulega ástæða er sú að hitinn eyðleggi frumuvegg grænmetisins sem kann að auka frásog líkamans af næringarefnum og að grænmetið hafi mikið magn næringarefna sem hjálpi til við að vernda gegn gigt.
Í gær vöknuðum við Hjalti í kringum 9, þurrkuðum stírurnar úr augunum og áttuðum okkur þá á því að við höfðum í fyrsta skiptið í 8 mánuði og rúmar tvær vikur vaknað sjálf. Þetta var skrítin tilfinning, góð en skrítin. Við vorum auðvitað fljót að rölta yfir í hitt herbergið og athuga með litlu svefnpurkuna sem svaf þá sem fastast á mallakútnum í rúminu sínu. Við lögðumst þá bara aftur uppí, en ekki leið á löngu þar til litla músin var vöknuð og farin að babbla við sjálfan sig. Eins og vanarlega var hún tekin uppí rúm til mömmu og pabba í pínu stund og svo farið niður að útbúa morgunmat. Við ákváðum að taka amerísku týpuna á morgunmatinn, a.m.k. helminginn af honum, og bökuðum pönnukökur. Okkur varð á þau mistök þegar mamma og pabbi komu í heimsókn að kaupa tvo pakka af pönnukökumixi og þó svo að pabbi minn sé öflugur í pönnukökuátinu þá tókst okkur aðeins að borða hálfan pakka á meðan þau voru í heimsókn. Hinn helmingurinn af morgunmatnum var samloka með túnfisksalati, alfalfa, lettuce og agúrkum. Mamma hefur verið að falast eftir uppskriftinni af túnfisksalatinu sem ég geri og hef ég því ákveðið að setja hana hér inn fljótlega.
Ég var að prófa alfalfa í fyrsta skiptið og okkur fannst það mjög gott. Passaði ótrúlega vel með túnfisksalatinu á samloku. Alfalfa er hálfgert baunaspírugras sem inniheldur mikið magn af próteini, kalki, A, B, C, E og K vítamíni. Það hefur verið mikið notað í óhefðbundnum lækningum við meltingavandamálum, þvagfæravandamálum, á að auka brjóstamjólk, vera vatnslosandi og grennandi. Sem sagt eitthvað voðalega hollt og gott.
Eftir morgunmatinn kom Marco yfir til okkar og bauð mér og Þóru Maríu að koma með þeim í búð sem heitir Michaels sem er stór föndurbúð hérna í Vancouver. Hún er staðsett í Richmont, sem er hálfgert úthverfi af Vancouver þannig að það er eitthvað sem við myndum ekki gera sjálfar mæðgurnar, þar sem við erum ekki með bíl. Við þáðum boðið og gerðum okkur ready fyrir bíltúr í caravaninum í Michaels. Michaels var skemmileg búð. Við keyptum nú samt eitthvað fátt en fundum garn þar á góðu verði þannig að ég get farið þangað þegar mig vantar ódýrt garn. Eftir Michales fórum við í moll sem heitir Oakridge Mall (41.ave og Oak st.). Þar röltum við um búðirnar og gerðum okkur glaðan dag. Þóra María var auðvitað hrókur alls fagnaðar, eins og vanarlega. Í Michaels hittum við tvær gamlar konur sem vildu fá að eiga hana. Ég hló bara að þeim, en ég held bara svei mér þá að þeim hafi verið alvara
Hjalti sat sveittur við lærdóm allan daginn, meðan ég og Þóra María skemmtun okkur. Hann er rosalega duglegur og stendur sig vel.
Ég hafði svo hlakkað til kvöldsins síðan ég sá auglýsingu í sjónvarpinu um að sýna ætti Something’s Gotta Give, með Jack Nicholson og Diane Keaton, um kvöldið kl 9 eastern time. Ég er greinilega ekki alveg komin inn í þetta austur- og vesturstrandar dæmi því að kl 8 fór ég að hugsa “ætli myndin byrji ekki fyrr hérna á vesturströndinni…er ekki tímamismunur milli strandanna” en því miður var það um seinan. Ég kom niður og kveikti á sjónvarpinu og myndin var hálfnuð. Ég dó þó ekki ráðalaus heldur hjólaði út á videoleigu, á meðan Hjalti eldaði sveppapastað góða.
Something’s Gotta Give var ágæt afþreying. Ótrúlegt að ég hafi ekki séð hana, því ég sé allar svona myndir, rómantísk, fyndin, góðir leikarar, frekar gott handrit, æðislegt hús á The Hamptons og góður endir, og ekki skemmdi fyrir að hann var í París. Það nýja við þessa mynd var það að ástfangna parið í myndinni var milli fimmtugs og sextugs sem er ekki venjan í þessum Hollywoodmyndum. Jack Nicholson er auðvitað alltaf góður, þannig að það var ekki við öðru að búast. Veiki hlekkurinn í myndinni var Keanu Reeves sem átti að vera sjarmerandi læknirinn, og var það bara alls ekki Hún fengi svona 7 á mínum rómóskala.
Jæja…Þóra María er vöknuð eftir 30 mín powernap-ið sitt og ég þarf að fara að taka úr þurrkaranum. Nóg að gera að vera housewife í Kanada
Þú hefur heyrt orðatiltækið “Þú ert það sem þú borðar.” Gettu hvað. Maturinn sem þér finnst góður, segir heilmikið til um persónuleikan þinn. Hér að neðan færðu pínulitla innsýn frá Dr. Alan Hirsch sem starfar hjá lyktar og bragð rannsóknarstöðinni (smell and Taste Research and Treatment Center). Hann greindi og rannsakaði persónuleika og matarást hundruða einstaklinga og hér eru hluti af niðurstöðunum sem hann komst að:
Fólk sem elskar kartöfluflögur er metnaðarfullt, nær árangri, keppnisgjarnt og þolir ekki að eyða tíma í vitleysu. Og þau elska það þegar makar þeirra eða börn skara fram úr í einhverju.
Fólk sem finnst tortilla flögur betri, eru fullkomnunaristar, alltaf stundvís og eru æðislegir húsgestir. Þessir einstaklingar eru ábyrgir þegar kemur að peningum, taka málstað litla mannsins og eru í stuttu máli einstaklingarnir sem þú myndir vilja hafa við hlið þér ef þú værir fastur/föst á eyðieyju.
Fólk sem elskar ostasnakk er yfirleitt jarðbundið, heiðarlegt, samkvæmt sjálfu sér og kemur vel fram við alla. Þeim er illa við óreiðu, er sama um titla og stöður, og reyna alltaf að skipuleggja sig vel, þannig að líkur eru á að þessir einstaklingar séu með aukabatterí og skyndihjálparkassa nálægt.
Þeir sem elska hnetur eru áreiðanlegir, léttir í lundu. Þeir eiga það líka til að vera rólegir þegar neyðarástand ríkir og er yfirleitt alveg sama þó að áætlanir breytist á síðustu stundu.
Að lokum eru það þeir sem að elska poppið. En þessir einstaklingar eru yfirleitt árangursdrifnir, en alveg óskaplega hógværir þegar kemur að afrekum þeirra og reyna ekki að hrósa sér um of. Satt best að segja, gætirðu búið við hlið poppkornselskanda og þú myndir aldrei vita að hann hefði gefið milljónir til góðgerðarmála þangað til þú læsir það í minningargrein um hann.
Þessi dressing er góð með öllu. Ég geri hana oft með fiski, kjúklingi eða grænmetisréttum, en það er líka hægt að nota hana á samlokur eða sem dýfu fyrir grænmeti eða þvíumlíkt. Hún er æði!
Spínatdressing
3-4 klumpar frosið spínat
3-4 dl súrmjólk/AB-mjólk
1 msk hunang
1/2 tsk salt
1 tsk cummin eða Garam masala
1/2 tsk chilli
1 tsk laukduft
3-4 msk ferskt kóríander, saxað fínt
Afþýða klumpana. Mér finnst fínt að setja þá í glerskál og setja glerskálina ofan í aðra skál/pott með heitu vatni úr krananum og leyfa þeim að chilla þar. Setja þá svo í eldhúsbréf og kreysta allt vatn frá. Saxa fínt niður. Blanda saman súrmjólk, hunangi og öllu kryddinu og smakka til eftir smekk. Magnið hér að ofan er ca það sem ég set í, annars er það bragðið sem skiptir máli – ekki magnið   Dömpa spínatinu útí og leyfa að standa í kannski hálftíma áður en sósan er borin fram svo þurrkaða kryddið nái að samlagast.
Þegar ég var að græja þennan rétt, í vinnunni, var ég sögð ansi hagsýn. Þar sem það orð er ekki notað oft um mig varð ég að grípa gæsina og kalla þennan rétt Hagsýnisfat   Í réttinn má nota alla grænmetisafganga sem þið finnið í ísskápnum og jafnvel bæta við afgangs kjúlla eða fisk eða hvaðeina. Þetta var það sem ég sett í fatið að þessu sinni, og það heppnaðist líka svona ljómandi vel!
Hagsýnisfat
f. 6-8 svanga
200 gr kúskús
2 dl sjóðandi vatn
1 dós kjúklingabaunir
1 lítil dós maískorn
2 laukar, saxaðir fínt
brokkolí, niðurskorið
1 sæt kartafla, í bitum
4-5 kartöflur, í bitum (átti soðnar í kæli, þarf ekki að nota)
5-7 gulrætur, saxaðar
1 lítil dós ananas í bitum, skorinn fínt
1 krukka Tikka masala sósa
1 dós kókosmjólk
Byrja á því að hella sjóðandi vatni yfir kúskúsið og leyfa því að standa í 5 mín. Krydda með hvaðeina sem þið viljið, ég setti chilli og cummin. Blanda saman Tikka masala sósunni, kókosmjólk og safanum af ananasinum í pott og hita að suðu, skutla þá 2-3 msk af sósujafnara og dass af chilli. Setja svo kúskúsið neðst í eldfast fat. Þar ofan á dreifir maður svo baununum, maískornunum og ananasbitunum. Steikja grænmetið (í skömmtum, fer eftir stærð pönnunnar) og skutla yfir baunirnar. Þvínæst er sósunni hellt yfir, fatið hrist smávegis til svo sósan nái niður að kúskúsinu og þessu hent inní ofn í ca 15 mín. Á meðan þurr-ristaði ég kókosflögur og furuhnetur á pönnu og skellti því yfir rétt áður en ég bar réttinn fram. Með Hagsýnisfatinu gerði ég svo spínatdressinguna mína.
Þessi uppskrift er frekar stór (þar sem hún varð til í vinnunni þegar ég eldaði fyrir dágóðan fjölda) en það má vel minnka hana (eða stækka enn meira!). Notiði bara það grænmeti og dósir (baunir, ananas, grænmeti) sem þið eigið og hreinsiði til í ísskápnum. Ef þið eruð eitthvað lík mér þá veitir víst ekki af!
Mie îmi plac orele fixe. De ce? Greu de spus.
Well, există una bucată superstiţie extrem, dar extrem de puerilă conform căreia, dacă te uiţi la ceas la ore fixe, cineva te iubeşte. Şi bineînţeles că tu, copil mic şi prost, nu te gândeşti la mama sau tata, că, deh, ei nu te iubesc în « sensul » ăla (de parcă s-ar specifica vreun sens :- ??), ci la un cineva mai special. Eventual de sex opus. Si eventual nu bunicul.
Să zicem că eu nu cred în poveştile astea. Să zicem. Dar cumva mi-au influenţat gândirea. Care gândire nu e încă destul de matură încât să nu îşi imagineze tot felul de chestii, pornind de la o oră. Citisem undeva că atunci când te uiţi la ceas şi mai este un minut până la oră fixă (adică XX:59), cineva te-a iubit. Dacă ai norocul să prinzi ora fixă, eşti iubit de cineva. Iar dacă e şi un minut (XX:01), atunci cineva te înşală. Doamne, cât poate fi de stupid! Dar totuşi, mă oftic foarte tare când intru în cazul 3, şi stau cu telefonul în mână la şi 59 până se face fix. De aici trag concluzia că mai e cale lungă până devin şi eu om cu capul pe umeri. Acum e suspendat undeva deasupra corpului.
Deci, revenind la problema mea referitoare la orele fixe, îmi dau seama că totul a pornit de la faptul că am prins (din nou!) o oră fixă (mă iubesc mulţi, ştiu) şi mi-am adus aminte de întreaga teorie fundamentată pe baza ei. Acum, întrebarea mea care nu mă va lăsa să dorm la noapte este: Dacă prinzi cumva 00:00, ce se întâmplă?! Te cere în căsătorie? Nu de alta, dar am o şcoală de terminat:))). Şi, pe deasupra, pretenţiile mele matrimoniale sunt grandioase.
P.S. Post stupid. Nu-l băgaţi în seamă.
P.S.2 E fix.
P.S.3 Ba nu e. Dar vreau eu să fie.
Fyrir mér er chilli con carne bara “skell’essu í pott og láta malla” svo mælieiningarnar eru sirkaðar. Svo bætið þið og breytið eftir eigin bragðlaukum. Mér finnst t.d. cummin svakalega gott og því hef ég slatta af því. Bjór er líka góður og ég er rausnaleg á hann líka. Hvað chilli varðar þá er betra að byrja á einu eða tveimur og bæta þá við í formi dufts eða mauks því fersk chilli eru misjöfn. Þessi útgáfa er meðalsterk. Þið smakkið þetta bara til!
Annað, hakkið! Prófiði að kaupa eitthvað annað hakk en nautahakk. Persónulega finnst mér nautahakk sísta hakkið af öllu, bragðlaust, vond lykt af því og seigt. Blandað hakk er fínt, lambahakk enn betra! Í kvöld prófaði ég folaldahakk sem ég fékk hjá B.Jensen (á tæpar 200 kr nota bene 500 gr!) og það er toppurinn. Svo ofboðslega bragðgott og mjúkt, en alls ekki afgerandi. Hakk er ekki bara nautahakk!
Svo er sjálfsagt að nota bara baunir, bæta etv kúrbít, kartöflum eða því grænmeti sem mann lystir. Já eða sojahakki?
Chilli con carne
f. 4
500 gr hakk að eigin vali
2 rauðlaukar
1-2 rauð chilli
1 kínverskur hvítlaukur eða 4-5 rif
1 paprika
2 msk cumminduft (broddkúmen, ekki kúmen)
1/2 tsk cayanne pipar
1 msk oreganó, þurrkað
1 msk ungverskt paprikuduft (eða bara paprikuduft)
1 dós af söxuðum tómötum (eða 4-5 maukaðir ferskir)
1 dós af nýrnabaunum
1 teningur (ég nota lamba)
4 msk barbeque sósa
1/2 lítill bjór eða pilsner (kokkurinn fær hinn helminginn!)
2 litlir bitar af suðusúkkulaði
3-4 msk chipotle mauk (fæst í Bónus hjá mexíkanska dótinu, er í raun bara maukaður pipar svo það má nota hvaða piparmauk sem er. Ef notaður er ferskur chilli eða rautt chillimauk þá er gott að byrja á 1 tsk og smakka til því það getur verið ansi sterkt.)
Byrja á því að steikja hakkið í olíu í góðum þykkbotna potti. Ég set lauk, hvítlauk og chilli í matvinnsluvélina og saxa smátt þar (það er auðvitað líka hægt að gera það í höndunum), bæti því svo útí ásamt paprikunni sem ég hef saxað niður í munnbitsstóra bita. Bæti útí öllu kryddinu (nema chipotle maukinu, ég nota það til að smakka til styrkleikann), barbequesósunni og tómötunum auk ca 1 dl af vatni sem ég nota til að hreinsa úr tómatdósinni. Leyfi þessu að malla í 10-15 mín og smakka þá til. Bæti útí chilli/chipotle/cayenne eftir smekk og set súkkulaðið útí. Þetta má malla í langa stund, en það dugar að láta það malla þar til þykktin er orðin fýsileg. Þá er nýrnabaunum skellt útí og látið malla þar til þær eru orðnar heitar í gegn.
Mér finnst best að borða þetta með hýðishrísgrjónum sem ég blanda saman við kóríander og gular baunir. Svo er líka nauðsynlegt að hafa nachos-snakk með og sýrðan rjóma.
Bon appetite!
í svona borgara.  Hildigunnur, er ekki frjáls dagskrá á matseðlinum á föstudaginn?
Dagurinn í dag fór að mestu leyti í sláturgerð.  Tókum 5imm slátur með mömmu og hjálpuðumst að við lifrarpylsu og blóðmörsgerð í dag.  Vorum frá eitthvað um hálf 2vö til að verða 6ex að vesenast.  Ekki kannski það skemmtilegasta sem maður gerir (svona svipað eins og að hreinsa sveppi) en vel þess virði.  Að minnsta kosti er maður alltaf feginn þegar þetta er búið.  Klikkt svo út með sviðaveislu í kvöldmat.  Ekki slæmt.
…þá vil ég benda á eftirfarandi ummæli:
“Var að baka heilsuhafraklatta og bananorkubrauð… djöfulsins viðbjóður! Hafraklattarnir eru eins og gúmmiboltar og bananabrauðið svo væmið að ég kúgast. “ -Hildur Kristmunds á facebook.
Ég ber enga ábyrgð á ykkar mistökum í eldhúsinu né slæmum smekk ! Ennfremur vil ég benda á að ég dassa allt og smakka deigið, það er lykillinn..
Annars er mér nokkuð sama.
p.s. Fyndið að mynda-googla bananabrauð á bæði íslensku og portúgölsku. Leitarniðurstöður fyrir bananbrauð eru allar með bönunum stöppuðum við deigið en fyrir bolo de banana eru bananarnir yfirleidd sneiddir ofaná, einsog í uppskriftinni sem ég fékk frá Brasil. Skemmtilegur menningarmismunur. Mitt brauð lítur annars svipað út og þetta á myndinni -nema hvað ég nota öðruvísi mót og bananarnir eru sjaldnast svona fallega raðaðir.
Síðasta posjónin af naan brauðum er inni í ofni. Byrjaði á að grilla þau í Gogga, en mér fannst þau of klesst. Er líka búin að baka bananaorkubrauð og hafraklatta auk þess að skella í kjúklingasalat sem var í hádegismat. Alveg tilvalið að nota mánudagsmorgun í bakstur þegar nánast allir tímar dagsins falla niður vegna ferðalaga kennara.
Þessi bakstur er þó ekki tilkominn af eintómum dugnaði. Hér á þessum bæ er allt gert for a reason, en í dag byrjaði formlega “heilsukeppni” okkar Jóns. Til að detta ekki í óhollustuna á löngum skóladögum (líkt og gerst hefur undanfarið með 1/2 kg af súkkulaðirúsínum á dag) mætum við í skólann með heimatilbúið, hollt og orkumikið nesti. Ísskápurinn er fullur af ávöxtum, skyri og kjúkling -og svo verða hafraklattar og orkubrauð smá uppbót.
“Heilsukeppnin” er líka komin til af gleðilegri ástæðu. Jón Ágúst hefur loks keypt sér árskort í ræktina og nú munið þið geta séð okkur bæði sveitt og sælleg í World Class. Þó líklega aldrei á sama tíma -við getum jú ekki sést hvort með öðru. En Jón er ekki þekktur fyrir að gera neitt tilgangslaust svo markið er sett hátt.
Ég stefni á að losna við 6 kg af fitu fyrir 20. desember og Jón Ágúst ætlar að vera búinn að bæta á sig 6 kg af vöðvamassa fyrir sama tíma (við erum svo mikið balance-fólk, að við viljum halda heildarþyngd okkar stögugri). Uppá ísskáp er komið blað með markmiðunum, bæði í orðum og myndum (!) og tafla þar sem árangurinn verður merktur inná vikulega. Einsog í öllum alvöru keppni eru verðlaun fyrir þann sem vinnur/nær betri árangri og þau eru ekki af verri endanum: Út að borða í Perluna í boði taparans + 1 klst í nudd.
Þið megið veðja á hvor vinnur !
Var svo búin að lofa að skella hér inn uppskriftinni að bananabrauðinu. Þetta er búið að vera uppáhaldsuppskriftin mín lengi. Fékk hana í ræktinni minni úti í Brasil með því loforði að ég léti hana ekki fara lengra. Þar með svík ég það loforð, enda finnst mér að allir megi njóta hennar. Og þó, því ég finn ekki uppskriftabókina. Læt ykkur því fá hana eftir minni, en svona gerði ég brauðið í morgun..
Bananaorkubrauð
1 dl spelt
1 dl klíð (má líka vera spelt)
1 1/2 dl púðursykur
1 msk lyftiduft
2 msk kanill (eða bara dass)
1 egg
1/2 dl mjólk
1/2 dl olía
3 bananar
Þurrefnunum blandað saman. Síðan er olíu, mjólk og eggi (má sleppa, en gerir léttara) bætt við. Hrært vel saman, á að vera frekar blautt. 2/3 af deiginu sett í mót (ég nota svona ílangt brauðmót, en hægt að nota hvað sem er) og bananarnir skornir þvert/langsum í og tvennt/þrennt og settir ofan á degið. Restin af deiginu fer yfir.
Skellt inní ofn á 180° í ca. 50 mín.
Vola og verði ykkur að góðu..