Ég er dottin í nostalgíuna. Eftir að Skjár1 lokaði höfum við skötuhjúin horft á hitt og þetta á kvöldin. Tókum nokkur kvöld í að horfa á Nonna og Manna-þættina sem eru jafndásamlegir og þeir voru fyrir 20 árum.
Ég er svo byrjuð að kafa í gömlum Will&Grace-spólum, sem eru með skemmtilegra sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið: Einu þættirnir sem ég hef fengið fráhvarf frá og VARÐ að sjá!! Það er bara alltof ljúft að rifja upp móment með gömlu vinunum undir teppi uppi í sófa.
Við Finnur ákváðum að við myndum ekki láta world cybergames Korea 2009 fram hjá okkur fara og plötuðum stelpurnar með okkur aftur í I-Park Mall daginn eftir. Við skelltum okkur á úrslitaleikinn í Starcraft á meðan stúlkurnar kíktu á mjög svo ódýrar fartölvur. Við komum okkur vel fyrir í miðjum salnum þar sem stemningin var rafmögnuð og öðru roundi var um það bil að ljúka með hörku bardaga. Eftir roundið fóru leiklýsendurnir yfir merkilegustu atburði leiksins upp að þeim tímapunkti. Svo hófst þriðja og síðasta roundið. Eins og allir strategy leikir þá byrja roundin í Starkraft frekar rólega svo myndatökumennirnir reyna að finna eitthvað meira spennandi í kringum sig. Fyrr en varði voru félagarnir tveir af fróninu komnir á risaskjá í beinni útsendingu um alla Kóreu og víðar þar sem þeir sátu í miðjum áhorfenda skaranum. Þetta var ekkert innan um hóp af fólki eða neitt svoleiðis heldur zoomað inn og allt saman. Þetta verður án efa að teljast okkar frægasta augnablik… eða allavega mitt því hver veit hversu langt LOKABIFRASTARJAMMSSAGAN af Finni er búin að ná langt
Kristmundur Daníelsson – Kóreufari
Póstaði ég seinast í maí? Ég held það og það er komin ágúst. Ég komin aftur til Reykjavíkur og flutt í Sörlaskjólið auk þess að bíða eftir því að finna vinnu við hæfi. Ef ekki, þá er ég víst á leiðinni í háskólann.
En ég nenni ekki að tala um það.
John karlinn Hughes var að deyja. Svona fyrir þá sem ekki þekkja til, þá gerði hann myndir á borð við Home Alone og svo var hann ábyrgur fyrir kvikmyndaferli Molly Ringwald og frasanum “Anyone? Anyone? Bueller?” (þó svo ég held að þetta hafi ekki verið orðað nákvæmlega svona í Ferris Bueller’s Day Off).
Hvað um það, fólk talar um að hann hafi náð anda unglingsáranna vel í sínum bíómyndum. Ja, ég veit ekki hver upplifði unglingsár sín eins og John Hughes mynd en það var sannarlega ekki ég. Mér fannst t.d. hin margrómaða Breakfast Club vera hálfgerð froða en kannski hefur það eitthvað með það að gera að ég sá þá mynd ekki fyrr en ég var búin að sjá þátt í fyrstu seríu af Dawson’s Creek sem vísaði mikið í Breakfast Club.
Nei, þær eru ekki margar amerísku unglingamyndirnar sem líkjast því sem maður upplifði sjálfur sem unglingur. Þær eru ekki kannski allar alslæmar en hversu mikið sem ég held upp á Dazed and Confused (leikstýrð af Richard Linklater), þá finnst mér hún ekkert lýsa því sem ég upplifði sem unglingur.
Góðu og raunsönnu unglingamyndirnar koma nefnilega frá Svíþjóð. Það þekkja margir til Fucking Åmål, kannski ekki jafnmargir sem þekkja til Hip Hip Hora! en sú mynd er feykilega góð. Ég reyndar efast um að Ameríkanar myndu höndla þessa mynd. Hún var víst bönnuð undir 18 í Bretlandi og er samt um 13-14 ára krakka. Heh, Bretar. Ég horfði nú á Skins sem fjallar um unglinga á svipaðan hátt (reyndar örlítið meira um staðalímyndir þar).
Áður fyrr hugsaði ég oft mikið um hluti sem mig langaði að gera. Ég vanmat líka oft tímann sem myndi fara í þessa hluti eins og t.d. að lesa bók, læra forritunarmál, læra á gítar og ýmislegt fleira. Afleiðingarnar urðu þær að sumt gleymdist, lítill tími fór í annað en ég lét samt skólann oftast hafa forgang.
Um daginn endurskoðaði ég þennan hugsunarhátt sem ég hafði ómeðvitað tamið mér. Hvað ef ég hætti að hugsa um allt sem mig langaði að gera og hugsaði frekar um það sem ég ætti ekki að gera. Hvernig er ég að sóa tíma mínum mest?
Eflaust margir sem lesa þetta hafa gengið í gegnum svipaðar pælingar. Ég ákvað samt að reyna að taka saman það sem ég sóaði mestum tíma í og reyna í framhaldi að sneiða hjá því í framtíðinni eða skerða þann tíma sem ég eyði í þá hluti. Hérna er listi yfir hluti sem ég eyði eða eyddi of miklum tíma í:
Sjónvarp – ég hætti að horfa á sjónvarp fyrir meira en þremur árum. Það eru mjög margar ástæður fyrir því að horfa ekki á sjónvarp og tímasóun er ein þeirra. Ég ætla ekki að telja allar þessar ástæður upp hér, kannski seinna í sér færslu, en að mínu mati eru rökin fyrir því að horfa á almenna sjónvarpsdagskrá veikari en rökin á móti.
MSN – ég minnkaði notkun þessarar þjónustu fyrir löngu síðan. Að lenda í klukkutíma spjallið við aðra manneskju er alveg ágætt. Ég á það samt til að gleyma mér of auðveldlega við það sem ég er að gera svo það er betra fyrir mig að hafa bara slökkt á msn.
Reddit, google reader, b2.is, popurls.org – Get auvðeldlega gleymt mér á þessum síðum og missi athyglina mjög fljótt við það sem ég var að gera. Er búinn að loka á þessar síður yfir daginn þ.a. ég hef bara aðgang að þeim á kvöldin.
Facebook – Nýja samskiptafíknin, þyrfti að loka á hana á daginn líka.
Ávanabindandi tölvuleikir eins og WoW. Það sem fékk mig fyrst til að hugsa út í almenna tímasóun.
Samgöngur með strætó. Ég hef ekkert á móti strætó þannig séð en ég reyni frekar að keyra ef ég fæ tækifæri til þess. Það eitt að taka hálftíma að komast frá Háskólanum í Grafarvog (jafnvel lengur í umferð og ef það er mikil bið) er ekki að gera sig.
Hvernig eru þið að sóa tímanum ykkar?
Það var vel til fundið hjá Sjónvarpinu í gær, 17. júní, að endursýna Íslenska drauminn eftir Róbert Douglas. Þjóðhátíðardagurinn er (að nafninu til) dagur þjóðarsjálfsmyndarinnar og Íslenski draumurinn er miskunnarlaus gegnumlýsing hins íslenska hugarfars. Myndin eldist vel meðal annars vegna þess að hún verður æ sannari eftir því sem frá líður.
Tóti er víða. Væri gerð um hann mynd í dag myndi hann starfa í banka eða í útrásinni. Sagan væri nokkurnveginn eins, sögusviðið pínulítið öðruvísi (flottari dekor, betri bílar…). Og hún gæti til dæmis endað svona:
Þungu fargi af okkur öllum létt; RÚV hefur ekki í hyggju að hætta að sýna Leiðarljós!
Nú skulum við vona að þeir fái svakalegan kreppudíl á þeim 10 árum sem eftir eru…
Um tíma þegar heimilið var með BBC Food í áskrift datt bloggarinn ítrekað inn í ákveðna tegund af sjónvarpsþáttum. Þessir þættir voru ekki hefðbundir uppskriftaþættir með prúðbúnum sjónvarpskokki í myndveri heldur lögðu þeir mikið upp úr hráefninu sjálfu. Þáttastjórnandinn (sem var kokkur) fór þannig út á ekrurnar, niður í fjöru, sigldi á bátum, rölti inn á markaðinn, kíkti í sláturhúsið - hvert sem gott, staðbundið hráefni var að finna.
Síðan hófst matreiðslan, alltaf í nýju umhverfi eftir því hvar þátturinn gerðist hverju sinni; heima í eldhúsi viðkomandi framleiðanda, í káetu lítils veiðibáts, stundum á veitingastöðum eða bara undir berum himni úti á engi og við lygna á.
Öllu þessu var miðlað af mikilli ástráðu og stundum slatta af breskum húmor hjá köppum eins og Keith Floyd sem yfirleitt eldar með vínglas í annarri hendinni og hinum stóískari Rick Stein. Keith er öllu hrárri en Rick fágaðri, hvor með sína kosti.
Við keyptum í dag loksins nokkra þætti með köppunum tveimur á amazon:
Rick Stein Food Heroes (mjög áhugaverð sería þar sem Rick ferðast um Bretland og notar staðbundið hráefni)
The Keith Floyd Cookery Collection – Floyd Around The Med (miðjarðarhafs matargerð)
The Keith Floyd Cookery Collection – Floyd On Italy (matur, vín og menning Ítalíu)
The Keith Floyd Cookery Collection – Floyd Uncorked (Keith ferðast um vínekrur Frakklands í þessari seríu)
Það má segja að þættirnir miðli í leiðinni heilbrigðari lífsstíl því staðbundið og hollt hráefni er það besta sem völ er á. Þeir fá mann til þess að langa til og njóta þess að borða (og drekka) betur í víðum skilningi þess orðs.
Frábært skemmtiefni ef maður er þannig innstilltur.
Dear Karen,
If you’re reading this, it means I actually worked up the courage to mail it so good for me. You don’t know me very well, but if you get me started I tend to go on and on about how hard the writing is for me. This is the hardest thing I ever had to write. There no easy way to say this so I’ll just say it, I met someone. It was an accident, I wasn’t looking for it, I wasn’t one the make it was a perfect storm. She said one thing and I said another and the next thing I knew I wanted to spend the rest of my life in the middle of that conversation. Now there this feeling in my gut that she might be the one. She completely nuts in a way that makes me smile highly neurotic, a great deal of maintenance acquired. She is you Karen, that’s the good news. The bad news is that I don’t know how to be with you right now, and that scares the shit out of me. Because if I am not with you right now I have this feeling we will get lost out there. It’s a big bad world full or twist and turns and people have a way of blinking and missing the moment. The moment that could of changed everything. I don’t know what’s going on with us and I can’t tell you should waste a leap of faith on the likes of me. But damn you smell good, like home and you make excellent coffee that has to count for something. Call me!
Unfaithfully yours,
Hank Moody
<object width='425' height='350'><param name='movie' value='http://www.youtube.com/v/E9nou1xr3sk&rel=1&fs=1&showsearch=0&hd=0' /><param name='allowfullscreen' value='true' /><param name='wmode' value='transparent' /><embed src='http://www.youtube.com/v/E9nou1xr3sk&rel=1&fs=1&showsearch=0&hd=0' type='application/x-shockwave-flash' allowfullscreen='true' width='425' height='350' wmode='transparent'></embed></object>Þegar við fórum til Frakklands síðasta haust tókum við stutta kvikmynd af heimsóknum okkar til vínframleiðenda allt frá suðri (Languedoc, Rhone og Provence) norður til Búrgúndarhéraðs.
Uppskeran var í fullum gangi, veður var gott og við náðum nokkrum ágætum augnablikum úr lífi franskra víngerðarmanna.
C’est la vie.
Ykkar undirritaður fer með aðalhlutverk í myndinni auk þess að leikstýra og klippa en naut góðrar aðstoðar Rakelar. Nú þarf bara að semja tónlistina.
Við blogguðum ekkert um þetta ferðalag á sínum tíma, kvikmyndin kemur í staðinn fyrir það, en við tókum fullt af ljósmyndum.
Sannsöguleg mynd. Fæst á öllum betri myndbandaleigum.
Smellið til að stækka
Ég hætti um áramótin sem ritstjóri Lands & sona, en sagði ekki frá því á vefnum fyrr en í dag. Hafði þá séð að Mogginn var að velta fyrir sér hvað liði tíðindaleysinu á síðunni. Það er ekki slæmt að hætta eftir svona ummæli. En kveðjubréfið er svona (og má líka sjá hér).
Ef til vill eru sumir lesendur vefsins að furða sig á hversvegna enn er verið að óska gleðilegra jóla, árs og friðar á forsíðunni. Ég sé að Morgunblaðið veltir því fyrir sér í klausu í fyrradag hvort þetta sé til marks um að kvikmyndaárið 2009 verði tíðindaminna en nýliðið ár. Sem betur fer eru litlar sem engar líkur á því, allt er á fullu í bransanum og fjölmörg verkefni í startholunum. Kannski ekki síst vegna þess að fyrir kvikmyndagerðarmenn er kreppuástand engin sérstök tíðindi. Hinsvegar er það svo að s.l. sumar óskaði ég eftir því við stjórn ÍKSA að láta af störfum um áramótin. Því miður hefur ráðning nýs ritstjóra tafist nokkuð og því verður örlítið gat í fréttaflutningi vefsins, en stjórn ÍKSA tjáir mér að væntanlega verði gengið frá ráðningunni í næstu viku.
Land & synir (L&S) hóf göngu sína í nóvember 1995. Ég var þá tiltölulega nýkomin heim frá námi í kvikmyndaleikstjórn og hitti að máli Böðvar Bjarka Pétursson, þáverandi formann Félags kvikmyndagerðarmanna. Við töldum báðir brýnt að efla umræðu- og fréttavettvang bransans og úr varð að við ýttum úr vör litlu blaði, sem ætlað var að koma út annan hvern mánuð.
Hugmynd okkar var að hafa þetta einfalt og viðráðanlegt. Betra væri að gefa út lítið blað sem kæmi reglulega út, heldur en að ráðast í viðameiri útgáfu sem ekki gæti staðið undir sér til lengdar. Báðir höfðum við gefið út vegleg kvikmyndatímarit áður og komist að þessum sannleik.
Segja má að þessi stefna hafi blessast, því blaðið hefur, ólíkt ýmsum öðrum íslenskum kvikmyndaritum, haldist í útgáfu þrátt fyrir þröngan stakk. Á móti kemur að svo ótalmargt var ókleift að gera vegna hins þrönga stakks – nokkuð sem auðvelt er að yfirfæra á bransann í heild sinni.
Félag kvikmyndagerðarmanna kostaði útgáfuna fyrstu árin en frá og með janúar 1997 tók Kvikmyndasjóður þátt í kostnaði blaðsins.
1998 lét undirritaður af störfum ritstjóra og við tók Sigurjón Baldur Hafsteinsson, sem stýrði blaðinu fram á haust 1999, en þá tók Björn Brynjúlfur Björnsson við keflinu. Frá og með september 2000 koma SÍK og SKL einnig að blaðinu sem fjárhagslegir bakhjarlar.
Vorið 2001 tekur undirritaður aftur við ritstjórn blaðsins og í desember 2003 fór vefurinn, www.logs.is, í loftið. Um leið var útgáfutíðni blaðsins minnkuð, fyrst í tvö blöð á ári og síðan í eitt, sem kemur út í kringum Edduverðlaunin og er nokkurskonar árbók bransans. Á sama tíma tók Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían, sameiginlegur vettvangur allra hagsmunafélaga kvikmyndagerðarmanna, við útgáfunni.
Vefnum var frá upphafi vel tekið. Samkvæmt Google Analytics frá 15. janúar 2008 til og með 14. janúar 2009, sóttu alls 13.179 gestir vefinn heim, alls 41.980 sinnum. 70% af gestum vefsins eru reglulegir lesendur. Vikulegar heimsóknir eru á bilinu 800 til 1000.
Þegar haft er í huga að bransinn allur, að meðtöldum starfsmönnum sjónvarpsstöðvanna, telur um 6-700 manns, er ljóst að vefurinn nær langt út fyrir raðir bransans.
Stór hópur úrvalsfólks hefur komið að Landi & sonum í gegnum tíðina. Þegar horft er yfir listann lætur nærri að kalla þetta nokkurskonar “who’s who”:
Eftirtaldir sátu með mér í fyrstu ritnefndinni auk Böðvars Bjarka Péturssonar, fyrrverandi forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands og núverandi eiganda Kvikmyndaskóla Íslands: Erlendur Sveinsson heimildamyndasmiður, Hildur Loftsdóttir blaðamaður, Sigurður Hr. Sigurðarson hljóðmeistari og Þorsteinn Jónsson leikstjóri, framleiðandi, handritshöfundur og fyrrum forstöðumaður Kvikmyndasjóðs.
Auk þeirra hafa eftirtaldir setið í ritnefnd á mismunandi tímum: Hákon Már Oddsson heimildamyndasmiður og dagskrárgerðarmaður, Einar Már Guðmundsson rithöfundur og handritshöfundur, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri og framleiðandi, Anna Th. Rögnvaldsdóttir leikstjóri og framleiðandi, Ólafur H. Torfason gagnrýnandi, Ari Kristinsson leikstjóri, framleiðandi og formaður SÍK; Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri, handritshöfundur, framleiðandi og fyrrum dagskrárstjóri og framkvæmdastjóri Sjónvarpsins; Gunnar Þorsteinsson dagskrárritstjóri Sjónvarpsins; Ingvar Þórisson heimildamyndasmiður; Heimir Jónasson fyrrum dagskrárstjóri Stöðvar 2; Laufey Guðjónsdóttir forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands; Ari Alexander heimildamyndasmiður, Elísabet Ronaldsdóttir klippari og fyrrum formaður ÍKSA; Haukur Hauksson dagskrárgerðarmaður; Haukur Már Helgason rithöfundur og heimspekingur; Jón Atli Jónasson handritshöfundur og leikskáld; Kristín Atladóttir framleiðandi; Páll Baldvin Baldvinsson fyrrum dagskrárstjóri Stöðvar 2; Ragnar Bragason leikstjóri og handritshöfundur; Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur og fyrrum forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands; Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur; Þorkell Ágúst Óttarsson guðfræðingur og kvikmyndaunnandi; Þorfinnur Ómarsson fyrrum forstöðumaður Kvikmyndasjóðs; Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur og myndlistarmaður og Þorsteinn J. Vilhjálmsson dagskrárgerðarmaður.
Um tíma réð blaðið þá Skarphéðinn Guðmundsson blaðamann og núverandi dagskrárstjóra Stöðvar 2 og Ottó Geir Borg handritshöfund til að sinna fréttaskrifum í hlutastarfi. Eru þá ótaldir allir þeir fjölmörgu til viðbótar sem skrifað hafa á blað og vef á þessum tíma.
Þess má og geta að allar sjónvarpsstöðvarnar, langflest kvikmyndafyrirtækin og öll helstu þjónustufyrirtæki bransans hafa stutt vef og blað með auglýsingum og fyrir þann ómetanlega stuðning skal sérstaklega þakkað.
L&S er öflugasta uppspretta frétta, umræðna og pistlaskrifa um málefni íslenskra kvikmynda og sjónvarps. Allir helstu fjölmiðlar landsins hafa margoft flutt fréttir af bransanum sem fengnar eru af vefnum. Þessu er svona lýst í klausu Morgunblaðsins:
“Málgagn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur um nokkra hríð verið með virkari upplýsinga- og fréttasíðum listiðnaðarins og aðrar stéttir listamanna gætu ábyggilega margt lært af síðunni. Oftar en ekki hefur ritstjóri málgagnsins, Ásgrímur Sverrisson, “skúbbað” fréttum af íslenskum kvikmyndagerðarmönnum og það hafa fjölmiðlar á borð við Morgunblaðið nýtt sér til að koma fréttunum til sinna lesenda”.
Og í lokin:
“…öruggt má telja að án síðunnar myndu færri fréttir um kvikmyndaiðnaðinn rata í fjölmiðla.”
Ég vil þakka Morgunblaðinu hlý orð í garð vefsins og mín. Það er ekki ónýtt að láta af störfum við þessi ummæli. Nú þegar ég sný mér að öðrum verkefnum vil ég þakka lesendum samfylgdina og óska væntanlegum ritstjóra alls hins besta í starfi sínu. Ég mun halda áfram að skrifa á vefinn og hvet fleiri til að leggja orð í belg á þessum mikilvæga vettvangi íslenskra kvikmyndagerðarmanna.
Með bestu kveðju,
Ásgrímur Sverrisson.
Stikluþættir þessa Sjónvarpsmanns Íslands eru líklega hápunktar hans ferils.
Er semsagt búinn að kíkja á einn; “Undir hömrum, björgum og hengiflugum”, þar sem stiklað er um Önundarfjörð, Dýrafjörð og Arnarfjörð. Þátturinn var sýndur 1984 og þarna hittir Ómar íbúa á Ingjaldssandi, einbúa við Lokinhamra og ýtustjóra sem uppá sína bjó til veg yfir fjöll og firnindi. Svo eitthvað sé nefnt.
Frómt frá sagt var þessi þáttur snilld. Þessi heimur var framandi fyrir borgarbúa á unglingsaldri eins og mig fyrir aldarfjórðungi. Í dag er þetta væntanlega horfinn heimur.
Sjónvarpið sýnir enn þætti af þessu tagi. Þeir heita Út og suður og eru í umsjá Gísla Einarssonar. Það eru fínir þættir og Gísli er sjarmerandi náungi. Þeir eru þó smærri í sniðum en Stiklur Ómars, sem náðu þegar best var að fanga sögu, náttúru og mannlíf með hætti sem var á einhvern hátt bæði alþýðlegur og almennur en einnig afar persónulegur.
Hlakka til að sjá fleiri þætti. Lesendum til fróðleiks má kaupa þá í vefverslun RÚV.
Vandi þess og vegsemd að vera RÚV.
Að undanförnu hefur ýmsu verið hent á lofti. Takmarkanir á auglýsingum, niðurfelling skulda við ríkissjóð, hugsanleg sala hússins, afnám lífeyrisskuldbindinga stofnunarinnar o.sv.frv. Forsvarsmenn RÚV hafa bæði bent á að frumvarpið feli í sér helmings skerðingu á auglýsingatekjum Sjónvarpsins og að hækkun nefskatts sé ekki næg miðað við verðlagsþróun. Einnig hefur ítrekað komið fram hjá þeim að erfitt sé að gera sér grein fyrir afleiðingum frumvarpsins, því ýmislegt sé óljóst.
Ef forsvarsmenn RÚV ganga um í þokunni gengur almenningur um í enn svartari þoku og með bundið fyrir augun. Nær ómögulegt er fyrir hinn almenna mann að taka þátt í þessari umræðu, nema þá í hinum mjög svo þjóðlega en hvimleiða skotgrafarstíl. Það er erfitt að hafa á þessum álitaefnum vitræna skoðun þegar forsendur liggja ekki fyrir nema að mjög takmörkuðu leyti.
Þessvegna er brýnt að horfa á aðalatriðin. Til hvers er RÚV? Hverskonar dagskrá á það að flytja okkur? Og þar sem peningar eru ávallt af skornum skammti – hvort sem kreppa ríkir eður ei: á að hverskonar efni á að leggja áherslu og hvað er ekki eins mikilvægt?
RÚV er í eðli sínu apparat sem miðar að því að gera eitthvað fyrir alla. Vissulega hefur RÚV eftir bestu getu reynt að framfylgja þessu í gegnum tíðina. Vandamálið er hinsvegar að um langa hríð hefur stofnunin verið undirfjármögnuð meðan stjórnendur hennar hafa reynt að halda í horfinu. Útkoman er krónískur taprekstur. Þetta gengur auðvitað ekki til lengdar og alls ekki í þeirri stöðu sem upp er komin á Íslandi.
Það góða við þrönga stöðu er að þá ætti sýnin á það mikilvægasta að skerpast.
Stjórnvöld þurfa að taka af skarið og fjármagna RÚV ohf. í samræmi við hlutverk sitt. Hvort meiri eða minni auglýsingar komi þar við sögu er tæknilegt atriði. Þó má færa fyrir því rök að ef RÚV losnaði við auglýsingar, eða minnkaði áherslu á þær, gæfist meira svigrúm til þeirrar dagskrársetningar sem tilvistarréttur RÚV byggist á, þ.e. að bjóða uppá vandaða innlenda dagskrárgerð að stærstum hluta. Á móti þarf að sjálfsögðu að bæta RÚV tekjutapið. Það gerist annaðhvort með hækkuðum nefskatti eða beinu framlagi úr ríkissjóði.
Auðvelt er að reikna til fróðleiks hversu hár nefskatturinn þyrfti að vera ef engar aðrar tekjur kæmu til og RÚV fengi eðlilegar hækkanir miðað við verðlagsþróun (20%). 205.000 lögaðilar x 26.000 kr. gæfu alls 5.33 milljarða í tekjur. Til samanburðar stendur til að nefskatturinn verði 17.900 kr. á mann eða alls um 3.7 milljarðar og að auglýsingatekjur fari úr 1.4 milljarði í milljarð. Samtals gerir það 4.7 milljarða. Þarna virðist því vanta um 630 milljónir til að RÚV nái að halda í horfinu.
Gott og vel, það er kreppa. Menn verða að skera niður og RÚV var einmitt að því. Um ca. 700 milljónir. Niðurskurðinn virðist hafa verið flatur á flestar deildir. Þessu má líkja við að klæðast of þröngum fötum í stað þess að ná af sér kílóum.
Skynsamlegra væri að Sjónvarpið markaði sér skýrari dagskrárstefnu, þar sem aukaatriðin væru miskunnarlaust sigtuð frá aðalatriðunum – mikilvægustu vígin varin en hin látin góssa, allavega í bili.
Og hver eru mikilvægustu vígin? Satt að segja er ekkert erfitt að koma auga á þau:
Vandað leikið efni sem tæki mið af þeim samfélagslegu álitaefnum sem uppi eru (líkt og Danir hafa verið að gera með góðum árangri).
Öflugar fréttir og ítarlegar fréttaskýringar sem byggðu á því trausti sem Fréttastofa RÚV nýtur.
Vandaðar heimilda- og fræðslumyndir um samtíð okkar, land, náttúru og sögu.
Fjölbreytt barnaefni.
Menningarefni hverskonar, þ.m.t. umfjöllun um bókmenntir og listir.
Annað mætti afgangi – sérstaklega í kreppu – enda má finna það annarsstaðar.
Ég hef engar áhyggjur af því að lítið áhorf yrði á Sjónvarpið með slíkri dagskrá. Áhorfskannanir benda til annars. Íslendingum mun finnast vel þess virði að greiða fyrir Sjónvarp sem hefði sannfærandi tilfinningu fyrir erindi sínu við þá.
Hefðbundar sjónvarpsauglýsingar hafa um nokkurt skeið átt undir högg að sækja bæði austan hafs og vestan. Stafræn sjónvarpsupptökutæki, t.a.m. TiVo í Bandaríkjunum og Sky box í Bretlandi gera sjónvarpsáhorfandanum kleift að annað hvort hraðspóla yfir auglýsingahólf eða hreinlega sleppa þeim. Þetta er vissulega bagalegt fyrir auglýsandann en talið er að um 11% auglýsinga í USA missi marks þar sem áhorfandinn sneiðir fram hjá þeim með hjálp upptökutækjanna. Þarna eru gríðarlegir fjármunir í húfi fyrir auglýsendur.
Þeir hafa því leitað annarra leiða til að koma vöru sinni og / eða þjónustu fyrir augu sjónvarpsáhorfenda. Staðsetning vöru inní þáttum og kvikmyndum í samráði við framleiðendur er þekkt leið (product placement / product integration), þá hafa bandarískar sjónvarpsstöðvar auglýst dagskrárefni sitt á auglýsingaborðum sem birtast á skjánum ofan í annað sjónvarpsenfni auk þess sem nú eru farin að birtast vörumerki og skilaboð frá auglýsendum inní þáttum rétt áður en kemur að auglýsingahléi. En nú má segja að þessi þróun sé að komast á nýtt stig.
Breska sjónvarpsstöðin ITV tilkynnti nýverið að hún muni áður en langt um líður hefja birtingu sjónvarpsauglýsinga inní þáttum með hjálp tölvutækni. Stöðin og tæknimenn á hennar vegum hafa þróað flókinn algorithma sem gerir auglýsendum kleyft að auglýsa á hlutlausum myndflötum inní miðjum sjónvarpsþáttum, s.s. á auðum veggfleti eða heiðum himni. Kallast þessi tækni “automatically placed overlay advertising” og eru þegar hafnar tilraunir með þessar tegundir auglýsinga í vefsjónvarpi ITV.
Eins og staðan er í Bretlandi í dag þá eru óbeinar auglýsingar óleyfilegar og sömu sögu er að segja af vörustaðsetningu, eða “product placement”. Það verður fróðlegt að sjá hvernig löggjafinn tekur á þessari tækni í Bretlandi, en gera má ráð fyrir að það verði auðveldara að auglýsa með þessum hætti vestan hafs.
Handan við hornið eru því auglýsingar sem áhorfandinn kemst ekki hjá því að sjá þegar hann horfir á uppáhalds sjónvarpsþáttinn sinn. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig áhorfandinn bregst við þess háttar auglýsingaáreiti.
Ég fékk heimsókn í gær og það var æði. Hún Ásta Stefánsdóttir sem vann með mér í Héraðsdómi var stödd hér norðan heiða og kíkti til mín í kaffi.
Réttara sagt gerði ég hana að tilraunadýri þar sem ég hafði ekki hellt upp á kaffi. Hún systir mín lét mig hafa þessa líka forláta expresso könnu svo ég prófaði hvort ég gæti gert drekkandi kaffi úr henni. Það virtist hafa tekist hjá mér, allavega drakk Ásta tvo bolla.
Svo fengum við okkur göngutúr niður í bæ og vorum aðallega í því að flækjast fyrir bílunum sem voru á rúntinum.
Ásta fór frá mér rétt fyrir miðnætti en ég gat bara alls ekki farið að sofa þar sem ég var eiginlega á kaffíntrippi. Sofnaði svo seint og um síðar meir og var ein af tíu Íslendingum sem horfði ekki á leikinn í morgun. Ekki að það hefði breytt neinu og svo er meira en lítið flott að vinna silfur.
Það var alveg ágætis veður hér á Akureyri í dag og ég fór í sund. Ég hef ekki komið í sundlaug Akureyrar í mörg mörg ár – mig grunar ekki síðan einhvern tímann á níunda áratugnum. Held að hún hafi tekið einhverjum breytingum en það var fínt að stinga sér til sunds þarna og fara svo og slappa af í heitu pottunum. Held meira að segja að ég hafi orðið útitekin en ég var þó ekki eins og einn gaur þarna sem virtist álíta að hann væri á frönsku rívíerunni eða eitthvað. Mjög ástríðufullur sóldýrkandi þar á ferð.