Naglinn er pervert. Dónalegur grautarpervert sem liggur yfir uppskriftum eins og argasta klámi, og sleikir skálina af áfergju til að ná síðustu dreggjunum ofan í botnlausan hylinn sem magamálið er.
Venjulega er gleðin kokkuð á eldstæði í grýtu í hinum ýmsu kombinasjónum, en nýlega ákvað Naglinn að stíga útfyrir sápukúlu vanans og prófa að baka kvikindið enda góður rómur gerður að slíkri útfærslu. Og það stóð heima, himnesk hamingja og Naglinn heyrði hörpuspil og sá regnboga við þessa haframjölskviðfylli .
Hafrarnir skemmtilega stífir undir tönn og meiri tygging í gangi en í graut af hlóðum og kanillinn og vanillan dönsuðu vals í kringum bökuð lúnamjúk bláberin.
Bakaður bláberjagrautur
1 skammtur
40g haframjöl*
2 dl vatn
2 eggjahvítur
1/2 tsk lyftiduft
klípa sjávarsalt
dass af kanil
1 tappi vanilludropar
70-100 g bláber * (geyma nokkur til að punta grautinn eftir eldun)
* magn fer eftir þörf hvers og eins
Aðferðin er aumingavæn út fyrir allan þjófabálk: Allt sett saman í ofnfast mót og bakað í 30 mín á 170°C
Skreyta með nokkrum bláberjum og drizzla Walden Farms sykurlausu pönnukökusírópi yfir gúmmulaðið.
P.S Búðu þig undir alvarlegan þátíðarátskvíða…. you’ve been warned.
Naglinn er með nestisblæti og fer helst ekki útúr húsi nema pökkuð af hollustu í pokahorninu, því ef hungrið sækir á svartholið og ekkert hollustutengt í skjóðunni hellist ofbeldishneigð, óhamingja og viðskotaillska yfir sálina og þá er voðinn vís.
Með skjóðuna fulla af hollmeti minnkum við líkurnar á að gripið sé í majónesusósað eða sykurhúðað sukkmeti. Svo sparar maður fullt af aurum að vera með sitt eigið… Allir vinna!!
Langir dagar á bókasafni, skrifstofu, flugvélum, skólastofu eða hvar annars staðar sem Naglinn elur manninn þann daginn eru því nestaðir í topp enda atvinnumanneskja í nestisgerð á ferð.
Atvinnumennska krefst prófessjónal græju til að ferja fóðrið milli staða.
Þessi taska er Ferrari þegar kemur að transporti á snæðingum fyrir langan vinnudag. Þrjár hæðir fyrir nestisbox, hliðarhólf fyrir vatnsflösku, shake brúsa, hólf fyrir vítamín, hnetur/möndlur, hnetusmjör, prótínduft eða hvað annað sem á að renna niður kokið.
Ef þú ert með skipulagið niðurneglt tekur ekki nema örfáar mínútur að henda í hollt og staðgott nesti. Með ísskápinn troðinn af soðnum grjónum, couscous, byggi, bulgur, kartöflum, steiktu hakk, kalkún, kjúklingi, bökuðum lax, eggjahvítupönnsum verður nestisgerðin að barnaleik. Að auki, þegar þú gerir þinn eigin mat veistu hvaða innihaldsefni eru í honum og getur fylgst betur með hversu margar varmaeiningar renna niður vélindað.
Kelp núðlur þarf einungis að skola í köldu vatni í örfáar mínútur og þær eru klárar til brúks. Til dæmis með rækjum.
Teriyakilax með kanilkúskús og brokkolí fyllir þig vel upp næstu þrjá tímana.
Sá sem fann upp nestisboxið til vinstri á að fá Nóbelinn, hólf fyrir kjöt, sósu, avocadogums ofan á, lítið box fyrir salatdressingu og stórt hólf undir fyrir salat.
Vefja með hakkgrýtu, káli, agúrkum er gómsætt og súperkvikkt til að dýfa sér ofan í lönsjboxið.
Ávextir, eggjahvítupönnsur, skyr, sykurlaus jógúrt, kotasælubúðingur, hnetusmjör, möndlur, hrökkbrauð, hrískökur, prótínsjeik eru dásamleg millimál meðan setið er á kontórnum.
Njótið vinnudagsins á beinu brautinni með skipulagið í botni og hollustuna í fimmta gír.
Naglinn kallar skipulögð frávik frá beinu brautinni “frjálsar máltíðir” en ekki “svindl” því svindl er neikvætt hlaðið orð og til þess fallið að valda kvíða, sektarkennd og niðurrifi. Ef þú borðar hollt 90-95% tímans, mætir samviskusamlega í hamagang og sinnir hvíldinni, áttu að leyfa þér sukkað og sykrað hliðarspor af og til.  Það er partur af lífsstílnum – þú ert ekki í munkareglu í ofanverðum Himalayafjöllum.
Eitt skemmtilegasta “frjálsa” át sem rennur ofan í endalaust svarthol Naglans er sveittur majónesusmurður hammari á helstu hamborgarabúllu København – Halifax. Djúpsteiktir kartöflubátar, majónesu aioli og átta kíló af tómatsósu bíða klár á kantinum að vera slátrað í græðgiskastinu.
En slík sukkveisla af milljón kaloríum myndi fljótt smyrja ansi þykku lagi af sleni á sálina og lýsi á lærin ef snædd oftar en góðu hófi gegnir og því takmörkuð við nokkrum sinnum á bláu tungli.
En maður getur samt notið lífsins lystisemdaán þess að sporðrenna of mörgum einingum til vermingar. Inn kemur hollur Naglavæddur hammari sem gleður sinnið  á hversdagslegum janúardegi.
Hollur hammari og kartöflubátar
1 kvekendi
4% hakk (fæst í Kjöthöllinni)
Season All, sjávarsalt, pipar eða hvaða krydd sem kitlar pinnann
5% ostur
iceberg kál
Sykurlaus tómatsósa (t.d Sollu)/salsa/sinnep/sykurlaus BBQ
5% sýrður rjómi
sneiddir tómatar
heilhveiti hamborgarabrauð
1. Móta litlar bollur úr 100g af hakki. Krydda vel og fletja aðeins út.
2. Steikja borgara í George Foreman grilli í 5-6 mín, á pönnu eða útigrilli í 2-3 mín á hvorri hlið. Undir lokin á steikingu skella 1-2 sneiðum af horuðum osti og leyfa að bráðna… jömms
3. Hita hamborgarabrauð í ofni eða ofan á brauðrist
4. Smyrja brauð með tómatsósu/salsa/sinnepi/sýrðum/bbq
5. Raða á brauðið: kál, gúrka, tómatar, rauðlaukur eða hvaða grænmeti sem gleður sjálfið, ásamt sjálfum borgaranum
Kartöflubátar
Kartöflur skornar í báta
Pam sprey
Pommes Frites krydd/pipar/sjávarsalt
1. Hita ofn í 220 °C
2. Setja kartöflubáta í poka, hella kryddi ofan í pokann og hrista eins og vindurinn.
3. Hella krydduðum kartöflum í ofnskúffu og spreyja með PAM (má sleppa)
4. Baka í 25-30 mínútur eða þar til gylltar og krönsjí að utan. Gott að róta aðeins í kartöflunum 1-2 sinnum meðan þær bakast.
Unaðslegar með nóg af tómatsósu eða horaðri kokteilsósu (sýrður + tómatsósa).
Eggjahvítur spila stóra rullu í morgunstund Naglans þar sem þeim er slátrað samhliða grautargleði til að fá gæðaprótín í sársoltna vöðvana eftir föstu næturinnar. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem sleppa morgunverð eru feitari en þeir sem slafra í sig eftir að hafa slefað á koddann, því þeir bæta upp fyrir það með að borða yfir sig á kvöldin. Hungrið lætur ekki að sér hæða.
Eggjahvítur eru besti prótíngjafi sem völ er á og eru eins og kameljón því það má breyta þeim í allra kvikinda líki: flöff, pönnsur, lummur, sjeika, ommilettu, marengs,  eggjahvítuís, súkkulaðiköku og ég veit ekki hvað og hvað….
Sítrónulummur
1 skammtur
5 eggjahvítur (150 ml)
1 mæliskeið HUSK eða 1/2 tsk xanthan gum
1 tappi Kötlu sítrónudropar
1/2 tsk lyftiduft
* HUSK og/eða xanthan þykkir deigið þegar ekkert glútein er til staðar til að binda það saman
1. Allt sett í blandara eða hrærivél
2. Hræra í 1-2 mínútur
3. Gumsa 1 matskeið af deigi á heita pönnukökupönnu. Þú getur bakað þrjú til fjögur kvikindi í einu.
4. Þegar bobblur myndast á toppnum skal þeim snúið á rassinn og leyft að dunda sér í 2-3 mínútur. Þú vilt hafa þær bakaðar alveg í gegn en ekki hráar í miðju… það getur verið stemmningsbrjótur.
Dásamlegt með sykurlausri bláberja- eða stikkilsberjasultu.
Þar sem öll hólf og gólf í eldhúsi Naglans voru stútfyllt af ávextinum sem er stundum grænmeti, rabarbara, eftir sjoppingtúrinn yfir grensuna var ekki annað í stöðunni en að henda í einn grautarunað: Vanillugraut með bökuðum rabarbara….haaaalelúja, halelúja, haleeeeelúja.
Þetta unaðslega kombó hefur ekki vætt varirnar síðan á haustmánuðum og ennþá nóg af rabarbarauppskeru sumarsins í frystinum og bragðlaukarnir liggja ennþá í kóma eftir þessa sprengju í munnholinu.
Vanillugrautur með bökuðum rabarbara
1 skammtur
Grautur:
haframjöl
1-2 mæliskeiðar HUSK
klípa salt
1-2 tsk chia fræ
1/2 tsk vanilluduft
Stevia vanilla créme dropar (Nóatún/Blómaval)
Bakaður rabarbari:
6 – 8 stilkar rabbarbari
1 msk Sukrin/Stevia
1 tsk vanilluduft
1. Hita ofn í 200°C
2. Skera rabarbara í 1 cm bita og setja í eldfast mót
Rabbarbari í eldföstu móti
3. Strá sukrin og vanilludufti yfir og blanda vel saman
4. Baka í 15-20 mín eða þar til rabarbarinn er mjúkur
5. Allt hráefni í graut sett í pott með vatni (magn eftir þykktarsmekk) og kokka upp á gamla móðinn
6. Gumsa rabarbara út í þegar grautur er tilbúinn til átu og hræra varlega saman svo bitarnir haldist heilir en maukist ekki í spað. Það er svo mikið fútt að fá heila bita undir tönn.
Dónalegur Daníel með kanil og Walden Farms pönnuköku sírópi drissluðu (skemmtilegt orð) yfir unaðinn.
Þetta át springur af fortíðarþrá þar sem dísykraður litarefnasósaður rabarbaragrautur skipaði stóran sess í mataræði Naglans á sokkabuxnaárunum.